06.09.1943
Efri deild: 11. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í B-deild Alþingistíðinda. (275)

30. mál, einkasala á tóbaki

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Út af þeim umr., sem hér hafa farið fram í kvöld, og eftir samtal, sem ég hef átt við fjhn., vil ég lýsa yfir því, að ríkisstj. mun skýra fjárhagsnefndum þingsins frá þeim ákvörðunum, sem gerðar verða um ráðstöfun þeirra tekna, sem hér um ræðir, og ráðstafanirnar munu því aðeins látnar koma til framkvæmda, að tryggt sé, að meiri hluti þm. sé þeim fylgjandi.

Þetta er sú yfirlýsing, sem rætt er um í nál.