10.12.1943
Neðri deild: 61. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í C-deild Alþingistíðinda. (2826)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Forseti (JörB) :
Mér skilst nú, að hv. 3. þm. Reykv. sé í grg. sinni fyrir ósk sinni um það, að málið verði tekið nú á dagskrá aftur, búinn að koma að þeirri leiðréttingu, sem hann taldi nauðsyn til bera, og þannig ná þeim tilgangi, sem hann hafði með ósk sinni. Ég get ekki orðið við þeim tilmælum hans að opna nú umr. þá aftur, sem lokið var nú nýskeð um þetta mál. Það er að vísu svo, að það er ýmist með það, hvort fundi er lokið í þessari hv. d. kl. 4 eða honum er frestað, þannig að veitt er fundarhlé í klst. En þannig stóð nú á í þetta sinn, að það var ekki nema einn á mælendaskrá á þessum venjulega fundartíma, þegar hv. 6. landsk. hafði lokið sínu máli, sem sé hv. 2. þm. N.-M. (PZ), og þá með aðeins athugasemd, sem hann fékk að gera, og er því var lokið, voru ekki fleiri á mælendaskrá, og þess vegna lauk umræðum þá.