11.12.1943
Efri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í C-deild Alþingistíðinda. (2842)

159. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (StgrA):

Það er með þetta mál eins og fleiri hér á dagskránni, að það verður ekki tekið fyrir nema með afbrigðum. Það er því nokkuð á valdi hæstv. ríkisstj., hvort hún lætur það koma fyrir eða ekki. Hún getur náttúrlega neitað um afbrigði, ef hún sækir fast að fresta umr. þess.