17.12.1943
Efri deild: 69. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2870)

159. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vil aðeins vísa til nál. á þskj. 660, þar sem ég hygg, að deilur um þetta mál séu þýðingarlausar, þar sem þinglausnir standa alveg fyrir dyrum. Ég vil hins vegar spyrja fulltrúa Sjálfstfl., hvort þeir muni veita afbrigði við þessa umr., svo að hægt væri að taka málið fyrir til 3. umr. á næsta fundi fyrir kl. 2,30. Ef yfirlýsing liggur fyrir um það, að þeir muni ekki gera það, þá er þýðingarlaust að halda þessu áfram.