14.10.1943
Efri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í C-deild Alþingistíðinda. (2932)

3. mál, eignaraukaskattur

Haraldur Guðmundsson:

Snemma á þessu þingi, 17. apríl, var útbýtt hér í d. frv. til l. um eignaraukaskatt, sem ég var flm. að ásamt hv. þm. Str. og hv. 3. þm. Reykv. Þann 19. sama mánaðar var frv. til 1. umr., en henni varð ekki lokið, og síðan hefur málið ekki verið tekið á dagskrá. Nú vildi ég mælast til þess, að hæstv. forseti tæki málið á dagskrá hið allra fyrsta.