14.10.1943
Efri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í C-deild Alþingistíðinda. (2934)

3. mál, eignaraukaskattur

Brynjólfur Bjarnason:

Ég hefði nú heldur kosið, að álit mþn. hefði komið áður en málið hefði verið tekið fyrir hér, og þar sem ég sé, að einn hv. dm., sem á sæti í mþn., er hér staddur, þá vildi ég leyfa mér að spyrja að því, hvað starfi n. líður og hvort ekki sé að vænta þess, að hún geri till. í þessu máli. En aftur á móti, eigi það að dragast á langinn, að n. skili áliti, þá tel ég alveg sjálfsagt, að málið verði nú þegar tekið til 1. umr., því að það er ekki seinna vænna, ef takast á að afgr. málið á þessu þingi.