14.10.1943
Efri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í C-deild Alþingistíðinda. (2937)

3. mál, eignaraukaskattur

Bjarni Benediktsson:

Ég var einn af þeim, sem voru á mælendaskrá, þegar þetta mál var til 1. umr. í vor, en fékk þá ekki að ljúka máli mínu. Hins vegar er nú óheppilegt að þurfa að svara ræðum, sem fóru fram í vor. Ég hafði hins vegar hugsað mér, að umræður mundu nú fara fram á þeim grundvelli, að mþn. hefði framkvæmt þá athugun, sem hún hafði ráðgert. Úr því að mþn. hafði málið til meðferðar, þá finnst mér sjálfsagt að láta hinar almennu umr. bíða, þangað til sá grundvöllur er fenginn, sem nauðsynlegur er (þ. e. nál.), úr því að 1. umr. hefur dregizt svona lengi.