08.11.1943
Efri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í C-deild Alþingistíðinda. (2949)

3. mál, eignaraukaskattur

Bjarni Benediktsson:

Ég kvaddi mér hér hljóðs í vor um þetta mál til þess að svara hv. 3. landsk., því að ég taldi sumt fráleitt af því, sem hann hélt fram.

Nú hef ég ekki allt það í huga, og fell því frá orðinu að svo stöddu, en tala þá við 2. umr., ef svo vill verkast. Enda eru nú atvik breytt frá því, sem var í vor, þar sem fyrir liggur nál. mþn. í skattamálum. Ég áskil mér svo rétt til ýtarlegri umræðna við 2. umr., ef verða vill.