19.11.1943
Sameinað þing: 33. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í D-deild Alþingistíðinda. (2955)

8. mál, kaup á hlutabréfum Útvegsbanka Íslands h/f

Forseti (GSv) :

Það er sýnilegt, að þessu máli verður ekki lokið nú. Fundartími er á enda og nokkrir á mælendaskrá. Málið er einnig þannig vaxið, að rétt mundi þykja að fresta því. Ýmsir hv. þm. eru fjarstaddir og það jafnvel sumir flm. Ég mun því verða að fresta þessari umr.