18.10.1943
Efri deild: 35. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (302)
58. mál, birting laga og stjórnvaldserinda
Dómsmrh. (Einar Arnórsson) :
Herra forseti. Ég þakka hv. allshn. fyrir meðferð hennar á þessu frv. Og eins og í nál. segir, þá eru brtt. gerðar á frv. í samráði við mig og með mínu samþykki að öllu leyti.
Viðvíkjandi breyt. á fyrirsögn frv. skal ég segja, að ég hef ekkert á móti henni. Eins og ég sagði, þá eru lögin þarna innifalin í, og Alþ. hefur þarna stjórnarvald. En hvort menn vilja hafa fyrirsögnina eins og hún er eða breyta henni á þá leið, sem tekið hefur verið fram, stendur mér alveg á sama um.