09.12.1943
Neðri deild: 60. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í C-deild Alþingistíðinda. (3098)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil beina því til hæstv. forseta, hverju það sætir, að frv. til l. um dýrtíðarráðstafanir, sem afgr. var fyrir alllöngu, hefur ekki verið tekið á dagskrá. Ég beindi sams konar fyrirspurn til hæstv. forseta fyrir alllöngu, og kvaðst hann hafa verið beðinn að taka málið ekki á dagskrá, en gat þess ekki, hver hefði um það beðið eða hverjar væru ástæður til þess. Vil ég æskja þess, að málið verði tekið á dagskrá hið allra fyrsta.