13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í C-deild Alþingistíðinda. (3112)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Frsm. meiri hl. (Jakob Möller) :

Það er algerlega óverðskuldað, sem beint hefur verið nú að hæstv. forseta fyrir meðferð hans á þessu máli. Hins vegar vil ég víkja því til hæstv. forseta, hvort hann sér sér ekki fært að heita hv. d. því, að þetta mál verði tekið á dagskrá nægilega snemma, til þess að því verði lokið, áður en þingi verður slitið. Það er vitanlega eftir að afgreiða mál í þinginu, sem taka það langan tíma, að þetta ætti að vera hægt. Ég vil því beina því til hæstv. forseta, hvort hann treystir sér ekki til þessa.