16.12.1943
Neðri deild: 65. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í C-deild Alþingistíðinda. (3116)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JörB):

Eins og hv. 8. þm. Reykv. man eftir, þá var samkv. ákvörðun þessarar hv. d. það ákveðið, að þetta mál skyldi ekki halda áfram þá. (ÁkJ: Þá var bara samþ., að málið skyldi ekki vera tekið fyrir til meðferðar á þeim fundi). Og ég skoða það svo, meðan ekki kemur fram áskorun um, að það verði tekið fyrir, að þeirri athugun, sem átti að fara fram á frv., sé ekki lokið. Annars hef ég ekkert á móti því, að málið komi á dagskrá.