18.11.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í D-deild Alþingistíðinda. (3208)

141. mál, kaup á efni í rafveitur

Flm. (Sigurður Thoroddsen):

Herra forseti. Ég þarf víst ekki að fara mörgum orðum um þetta mál. Þm. er kunnugt um, í hvaða tilgangi það er flutt, en í sambandi við till. um kaup á rafveituefni til Keflavíkur þótti okkur flm. rétt, að till. um þau efniskaup yrði samþ. sérstaklega, en þessi till. sér. Það var rætt um þessa till. í umr. um Keflavíkurtill., og eftir undirtektunum þá og samtali við form. fjvn. ætti þessi till. að fá fljóta og góða afgreiðslu. Ég vil svo óska þess, að till. verði vísað til fjvn.