20.10.1943
Neðri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í D-deild Alþingistíðinda. (3226)
100. mál, skipun mjólkurmála
Forseti (JörB) :
Viðvíkjandi þessu máli, sem gert hefur verið hér að umtalsefni, hverju það sæti, að till. um rannsókn mjólkurmála hafi ekki verið tekin á dagskrá, skal ég taka fram, að ég var fjarverandi í síðustu viku og bjóst ekki við að ná fundi á mánudag. Það var að minni ráðstöfun, að þetta mál og fleiri voru ekki tekin á dagskrá, því að ég var þannig riðinn við sum þeirra, að ég kaus heldur að vera viðstaddur, er umr. færu fram. Annars hygg ég, að hv. þm. viti, hver er orsök þess, að afgreiðsla þingmála gengur ekki betur en raun ber vitni. Frv. um breyt. á mjólkurl. og þessi till. eru það tengd mál, að ég bjóst við, að þau mundu verða nokkuð rædd í sameiningu. Þess vegna hef ég látið þau fylgjast að, en hv. þm. veit, hvað miklar umr. hafa orðið um það mál, og má búast við, að enn sé þar nokkuð eftir. Einn af þeim mönnum, sem hefur látið þetta mál sig eigi litlu skipta, hv. þm. V.-Sk., gat sakir sinna starfa heima í héraði ekki verið við umr. í dag, og það var í samráði við flesta flm. frv., að það er ekki á dagskrá nú.
Hv. þm. segir, að mál, er síðar komu fram en till. hans, hafi verið tekin fyrr til umr. Ef mál yrðu tekin til umr. eftir því, í hvaða röð þau hafa verið borin fram, þá yrði það til þess, að því nær ekkert næði afgreiðslu. Ég hef haft þann hátt til að koma málum áleiðis að taka fyrst fyrir þau mál, sem búast má við, að litlar umr. verði um, en ef ætti að taka málin eftir aldursröð, þá yrði það til að stöðva gersamlega framgang ýmissa mála, sem hægt væri að koma áfram í fljótu bragði. En um frv. um breyt. á mjólkurl. og þáltill. þessa hv. þm. vil ég geta þess, að ég mun taka þau á dagskrá á morgun.