13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í D-deild Alþingistíðinda. (3271)

100. mál, skipun mjólkurmála

Bjarni Ásgeirsson:

Eins og ég tók fram í umræðum, þá álít ég enga þörf á rannsókn í þessum málum og þessa nefndarskipun því óþarfa. Hins vegar er mér kunnugt um, að hv. 2. þm. Skagf. hefur unnið með drengskap að því að fá það bezta út úr þessu máli, sem hægt er. Ég vil því ekki leggja stein í götu þeirrar úrlausnar, sem honum hefur tekizt að ná, og greiði ég ekki atkv.