14.12.1943
Sameinað þing: 42. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í D-deild Alþingistíðinda. (3299)
185. mál, launakjör alþingismanna
Flm. (Lárus Jóhannesson) :
Herra forseti. Ég ber fram till. á þskj. 601 um að kjósa mþn. til að athuga launakjör alþm. Þau eru nokkuð lág samanborið við þau miklu störf, sem þm. hafa, og þá löngu þingsetu, sem nú er farin að tíðkast. Ég skal ekki ræða um það, á hvern hátt tiltækilegast væri að skipa þessum málum, hvort gera ætti t. d. þm. að föstum launamönnum, eins og erlendis tíðkast, og í sambandi við það, hvort ekki væri rétt að tryggja þm., sem lengi hafa setið á þingi og oft sett sig úr fjáröflunarfæri, eða ekkjum þeirra nokkurn ellistyrk, ef þeir eiga ekki kost á honum annars staðar að, er þeir láta af störfum. Ég veit um eitt tilfelli, þar sem fjárhagur eins fyrrverandi þm. var á þann veg, að hann leið neyð, og ef ekki hefði verið komizt að því, hefði hann enga úrlausn fengið, því að ekki leitaði hann ásjár annarra.
Ég skal svo ekki lengja mál mitt; en óska þess, að till. fái sem greiðasta afgreiðslu.