15.12.1943
Sameinað þing: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í D-deild Alþingistíðinda. (3312)

184. mál, uppbót á þingfararkaupi

Jónas Jónsson:

Ég vil aðeins stinga upp á því, þar sem það mál, er hér um ræðir, er nokkuð vafsturssamt, eins og sézt á hinum mörgu brtt., sem fram hafa komið, og komið er að lögmætum hvíldartíma, að forseti unni málinu nokkurrar hvíldar, og er það ósk mín, að þm. tali ekki meira um þetta að svo stöddu.