15.12.1943
Sameinað þing: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (3321)

184. mál, uppbót á þingfararkaupi

Bernharð Stefánsson:

Ég greiddi atkv. með dagskrártill. og tel, að þetta hefði átt að bíða, þar sem búið er að kjósa n. til að gera till. um launakjör þingmanna. Ég er á móti öllum þeim till., er hér hafa komið fram, og tel, að bezta kjarabótin, sem utanbæjarþm. gætu fengið, væri sú, að þingið sæti helmingi styttra. Ég segi því nei.