15.12.1943
Efri deild: 67. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í D-deild Alþingistíðinda. (3335)
117. mál, rafveituskilyrði í Mývatnssveit
Frsm. (Páll Hermannsson) :
Iðnaðarn. hefur athugað till. og jafnframt leitað umsagnar rafmagnseftirlits ríkisins um hana. Eftir að n. hafði kynnt sér álit þess, hefur hún orðið sammála um að leggja til, að till. verði samþ. N. hefur þó gert tvær smábreyt. á orðalaginu. Fyrri breyt. er leiðrétting, en hin síðari setur ákveðin tímatakmörk fyrir rannsóknina, þannig að hún fari fram á næsta ári.