16.12.1943
Sameinað þing: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í D-deild Alþingistíðinda. (3369)

191. mál, lækka verð á vörum innan lands

Sigurður Kristjánsson:

Ég tel, að þessi till. fullnægi þeirri kröfu minni, að það sé alveg ákveðið, að Alþ. ráði yfir fjárveitingum úr ríkissjóði. Af þeirri ástæðu treysti ég mér ekki til að greiða atkv. á móti henni. En þar sem mér þykir það skorta á till., að fjárhæðin sé tiltekin, greiði ég ekki atkvæði.