16.12.1943
Sameinað þing: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í D-deild Alþingistíðinda. (3370)

191. mál, lækka verð á vörum innan lands

Gunnar Thoroddsen:

Ég hefði kosið það tvennt, að heimildin samkvæmt þessari till. væri bundin við takmarkaðan tíma og takmarkaða fjárhæð. Um það hefur ekki náðst samkomulag. En þar sem ég álít háskalegt, að greiðslur falli niður, segi ég já.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Till. vísað til síðari umr. með 25:17 atkv.

Till. um að vísa málinu til fjvn. felld með 23:18 atkv.