13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í D-deild Alþingistíðinda. (3533)
156. mál, rannsóknarnefnd vegna eyðileggingar á kjöti og öðrum neyzluvörum
Páll Zóphóníasson:
Ég gat þess áðan, að þessi till. mundi þurfa allmikla breyt. til þess að unnt yrði að afgreiða hana. Get ég því fallizt á, að málinu verði vísað frá að svo stöddu, og tek ég því till. mína til baka.