15.10.1943
Sameinað þing: 19. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í D-deild Alþingistíðinda. (3592)

85. mál, vatnsveita í Grímsey

Forseti (GSv):

Hv. flm. þessa máls taldi sér nokkur forföll, en vísaði á hv. síðari flm., sem þá hvarf. Vil ég ekki láta málið gjalda þess að öllu, enda hefur einn hv. þm. þegar talað um þetta mál, eftir því sem honum hæfa þótti, og hefur hann með ræðu sinni að vísu hjálpað til með það, að málið sé tekið til meðferðar á þingi. Hins vegar er ekki hægt að fylgja þeirri reglu að svo vöxnu, sem sá hv. þm. óskaði, að málinu verði eytt, og verð ég — til þess að halda uppi ákvæðum þingskapa — að telja, að þessari fyrri umr. um málið sé lokið.