11.11.1943
Efri deild: 46. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í D-deild Alþingistíðinda. (3752)

142. mál, skipulagsnefnd ríkisins

Flm. (Jónas Jónsson) :

Ég hef lítið meira um þetta að segja, en vildi aðeins bæta því við, að ég tel það ákaflega varhugavert að taka nokkurn hluta landsins út úr skipulagskerfinu. Og ég tel enga ástæðu til að taka Rvík sérstaklega út úr, ekki fremur en t. d. Snæfellsnessýslu, og það væri aðeins til þess að skapa glundroða á skipulagsmálunum.

Ég mæli með, að till. verði vísað til allshn.