15.12.1943
Efri deild: 67. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í D-deild Alþingistíðinda. (3774)

179. mál, dragnótaveiði

Flm. (Jónas Jónsson) :

Það er enginn vafi á því, að enginn þm. segir beint, að hann greiði atkv. fyrir kjósendafylgi. Hins vegar er það sannað mál, að þeir taka alltaf tillit til kjósenda sinna. Ég lýk svo þessu máli mínu með því að minna á, að dragnótin er eins og erfðasyndin, erfið og varanleg og ekki auðsigruð.