21.09.1943
Neðri deild: 20. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í B-deild Alþingistíðinda. (512)

36. mál, kjötmat o.fl.

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Ég hef áður gert grein fyrir þessu máli og þarf ekki að endurtaka það. En út af brtt. þeirri, sem hér liggur fyrir frá hv. 2. þm. N.-M. (PZ); vil ég geta þess, að n. hefur tekið hana til athugunar, og varð sú niðurstaða í n., að nm. hafa óbundnar hendur um hana. En ég efast um, að nokkur hv. nm. geti á hana fallizt.