01.10.1943
Efri deild: 28. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (532)

36. mál, kjötmat o.fl.

Frsm. (Páll Hermannsson):

Ég óskaði nú eftir því við hv. forseta í gær, að umr. um þetta mál yrði þá frestað, þar eð hæstv. atvmrh. var þá ekki viðstaddur, en sú skoðun hafði komið fram hjá hv. 6. þm. Reykv. hér í d., að sú breyt., sem hér er fyrirhuguð, mætti e. t. v. skoðast ófullkomin umbót á l. Ég hefði gjarnan óskað eftir því sjálfur að heyra álit hæstv. ráðh. um þetta, þar eð hann hefur látið undirbúa þessa lagabreyt. og mun því vera málinu kunnugastur.