06.12.1943
Efri deild: 61. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í B-deild Alþingistíðinda. (761)

91. mál, stríðsslysatrygging íslenzkra skipshafna

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Eins og lýst var við 2. umr., hafði sjútvn. frv. þetta til athugunar og hefur náðst samkomulag um brtt., sem bornar eru fram á þskj. 560. Í því sambandi vil ég benda hv: forseta á, að nokkrar prentvillur hafa slæðzt inn í tillöguna: 2. liður á að vera 1. liður og tilheyrir 15. gr., og 1. liður á að vera 2. liður.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um frv. Vænti ég þess, að brtt. verði samþ. og frv. þannig breytt samþ. út úr deildinni.