07.10.1943
Efri deild: 30. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (810)
54. mál, afmáning veðskuldbindinga úr veðmálabókum
Frsm. (Lárus Jóhannesson):
Herra forseti. Með l. nr. 64 4. júlí 1942 var yfirvöldum héraða falið að gera skrá yfir veðskuldbindingar, sem höfðu ekki verið afnumdar, en ætla mætti, að væru greiddar. Eftir að ráðstafanir höfðu verið gerðar til að rannsaka, hvort veðskuldbindingar væru felldar niður, var gefinn út frestur til birtingar ógildingarstefnu til þess að afmá veðskuldbindingar úr veðmálabókum, og samkv. 2. málsgr. 4. gr. þessara l. var ákveðið, að stefna skyldi birt fyrir 1. apríl 1943. Nú hefur komið í ljós, að nokkrum héraðsyfirvöldum hefur ekki unnizt tími til að fullnægja þessum ákvæðum, hvað viðvíkur frestinum til birtingar ógildingarstefnu. Var því eftir beiðni form. félags héraðsdómara lagt fram þetta frv. og borið fram af allshn. Nd. Það hefur verið samþ. þar, og hefur allshn. Ed. einróma lagt til, að það verði samþ. óbreytt. Ég skal taka það fram, að einn nm. (HermJ) var ekki viðstaddur atkvgr. í allshn. — Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta, en vil endurtaka, að n. leggur einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt.