07.10.1943
Efri deild: 30. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (811)

54. mál, afmáning veðskuldbindinga úr veðmálabókum

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að beina þeirri spurningu til frsm., hv. þm. Seyðf., hvort allshn. hafi kynnt sér það, hve margir sýslumenn og bæjarfógetar eru ekki, búnir að afgreiða þetta mál frá sér. Ég hef séð í Lögbirtingablaðinu, að ýmsir hafa gefið út tilkynningu um þessi skjöl, en svo veit ég um aðra, sem engar tilkynningar hafa birt og hafa getað lokið þessum málum heima hjá sér. Hins vegar skal ég geta þess, að mér er ekki kunnugt um, hve margir héraðsdómarar hafa lent í þessum drætti, og þætti mér því vænt um, ef n. vildi afla sér gagna viðvíkjandi því.