24.09.1943
Efri deild: 24. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í B-deild Alþingistíðinda. (831)
55. mál, happdrætti Laugarneskirkju
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. 1. þm. Reykv. fyrir þau orð, er hann hefur hér látið falla.
Um það hljótum við að vera sammála, að úr því að undanþága hefur verið veitt á útsvari og tekjuskatti á vinning í happdrætti Laugarneskirkju, þá kemur stríðsgróðaskattur ekki til greina.
Hv. 5. þm. Reykv. ætlaði að hella úr skálum reiði sinnar yfir mig, þó að það að vísu lenti á öðrum, fyrir þær sakir, að ég hafi haldið því fram, að það væri fráleitt og kæmi ekki til neinna mála að ræða um þetta hér á þingi, því að þm. hefðu skuldbundið sig með undirskriftum til að veita þessu máli stuðning. Hann spyr, hvort ég telji þetta til fyrirmyndar. Þetta kemur ekki málinu við.
Ég minni bara á hitt atriðið, að það hefði ekki verið lagt út í þetta happdrætti, að minnsta kosti hvað Hallgrímskirkju snertir, nema af því að þetta skattfrelsi var talið tryggt, Annars hefði verið þýðingarlaust að ráðast í þetta fyrirtæki. Með þessu móti vildi ég sanna það, að því fari fjarri, að ríkið sé með þessu að leggja fram fé til kirkjubyggingar, heldur væri ríkið beinlínis að spara sér fjárframlög og gera einstaklingum kleift að leggja fram fé. Það er augljóst mál, að ríkið verður ekki af neinum tekjum, þó að þessi undanþága verði hér veitt. Tekjur ríkisins verða ekki meiri, þótt þessi undanþága verði ekki veitt.
Ég skora á, hv. 5. þm. Reykv. að svara þessu. Ég vil biðja hv. þm. að athuga þetta í næði og vona, að hann veiti frv. stuðning, því að þetta er beinlínis aðferð til þess að losa ríkið við að leggja fram fé í þessu skyni.