14.10.1943
Neðri deild: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í B-deild Alþingistíðinda. (856)
56. mál, happdrætti Hallgrímskirkju
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Þetta frv. er um að undanþiggja vinning í happdrætti Hallgrímskirkju frá álagningu skatta. Eins og nál. á þskj. 161 ber með sér, þá vill meiri hl. n. samþ. frv. óbreytt. Hv. þm. Sósfl. vill aftur fella það. Ég sé svo ekki ástæðu til frekari orða af hálfu nefndarinnar.