15.04.1943
Efri deild: 1. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (9)

Sætaskipun

Ingvar Pálmason:

Ég legg til, að leitað sé afbrigða frá þingsköpum um sætaskipunina, þannig að hún sé látin haldast óbreytt nú fyrst um sinn og athugað, hvort ekki er hægt að greiða úr þeim erfiðleikum, sem eru nú á sætaskipun.