25.10.1943
Efri deild: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (915)

48. mál, verðlag

Bjarni Benediktsson:

Ég vildi bera fram fyrirspurn út af áliti landbn. Nd. Þar er gert ráð fyrir, að verðlagsn. haldi tilveru sinni, þó að starf þeirra verði með allt öðrum hætti, meðan núverandi ástand helzt, eins og í nál. segir. Ég vil nú spyrja, hvaða starf þeim sé ætlað, úr því að grundvöllurinn er lagður með starfi vísitölun. Á viðskiptaráð að ákveða, hvað n. skuli hafast að?