18.11.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

27. mál, fjárlög 1944

mælti forseti (GSv):

Ég skal geta þess, að nú hefur loks verið svo ákveðið, að útvarp 3. umr. fjárlaga fyrir árið 1944, sem verða eldhúsdagsumræður, fari fram í næstkomandi viku, á miðviku- og fimmtudagskvöld, og hefjist kl. 8,15. Hver flokkur fær til umráða 35 mínútur auk ríkisstj., sem fær sama tíma til umráða, og er það fimmti flokkurinn. Þetta var fyrra kvöldið, og verður það ein umferð. Síðara kvöldið verða þrjár umferðir, og skiptist tíminn milli áður nefndra fimm flokka í 25, 15 og 10 mínútna bil. Að öðru leyti verður þetta tilkynnt nánar síðar.