08.01.1945
Neðri deild: 96. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (102)

217. mál, skipun læknishéraða

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson):

Frv. þetta er samið af mþn., sem starfað hefur að endurskoðun á skipun læknishéraða. Miðar það að því að fresta því, að skipaðir verði læknar í 2 læknishéruð. Læknar hafa ekki fengizt í héruðin enn, vegna þess að þeir, sem við breyt. áttu að búa, vildu ekki við hana una. Þar sem þetta frv. átti í rauninni að koma í gildi um s.l. áramót, vildi ég óska þess, að málið fengi afgreiðslu sem allra fyrst.