15.02.1945
Efri deild: 128. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (1123)
250. mál, ríkisreikningar 1941
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
N. áleit ástæðulaust að blanda þál. í Sþ. inn í nál., enda tekur hún sinn þátt sem aðrir þm. í afgreiðslu þál. þar. Ég geri ráð fyrir, að nm. séu því sammála, að ríkisreikningurinn hefði átt að verða fyrr tilbúinn en, raun hefur á orðið, þessi ríkisreikningur, sem nú á að afgreiða á þingi, sem er enn þing ársins 1944, hefði átt að afgreiðast á þinginu 1943.