25.02.1944
Efri deild: 15. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)
37. mál, lendingarbætur í Breiðdalsvík
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Fyrir hönd sjútvn. hef ég það eitt að segja, að n. hefur athugað frv. og borið saman við hliðstæð l., sem afgreidd voru frá Alþ. á síðasta ári, og leggur hún til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. Að vísu var einn nm., hæstv. forseti, ekki á fundi, þegar málið var afgr., en mér er ekki kunnugt um, að hann geri nokkurn ágreining um málið.