29.02.1944
Efri deild: 18. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 913 í B-deild Alþingistíðinda. (1404)
50. mál, atkvæðagreiðsla um niðurfellingu dansk-íslenzka sambandslagasamningsins og lýðveldisstjórnarskrár Ís
Frsm. (Bjarni Benediktsson):
Það virðist ljóst, að síðari brtt. hv. þm. Dal., sú við 6. gr., sé til bóta, og eins brtt. við upphaf 5. gr., þannig að sú brtt. gerir torvelt að loka kjördeild, nema full ástæða sé til. Aftur má segja, að hæpið sé að bæta við orðinu „hreppsins“ í síðari hluta gr., en það getur þó varla gert skaða. Sýnist því rétt að samþ. þessar till. eins og þær liggja fyrir.