13.06.1944
Neðri deild: 33. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (1535)

75. mál, leigunám veitingasala o.fl.

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. — Það er öllum þm. kunnugt, hvaða orsakir liggja að þessu frv., og þarf ekki að rekja þær, en ég vil geta þess, að frv. er á engan hátt borið fram til þess að ganga á rétt hótelstjórans. Slíkar ástæður, er hér liggja fyrir milli húseiganda og starfsmanna, er ólíklegt, að valdi sams konar aðgerðum í framtíðinni, svo að ótti um fordæmi þarf ekki að koma til greina.

Eftir þær umr., sem orðið hafa á milli þm. um þetta mál, tel ég óþarft að hafa frekari framsögu. Það er æskilegast, að úr þessu verði einungis skorið með atkvgr.