12.09.1944
Efri deild: 41. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (1717)

94. mál, byggingarmálefni Reykjavíkur

Jónas Jónsson:

Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hv. flm., hvort það sé ekki í einu verulegu atriði, sem hann gat um í framsöguræðu sinni, sem landslög eiga ekki að gilda um byggingarmálefni Reykjavíkur, ef þetta frv. er samþ. eins og það er. Ég hygg, að það sé þannig, að þetta frv. sé hlekkur í keðju, sem er nokkuð gömul, að Reykjavík þurfi ekki að hlíta úrskurði skipulagsn. í byggingarmálum.