16.11.1944
Neðri deild: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (1788)
52. mál, hafnarlög fyrir Akureyrarkaupstað
Sigurður E. Hlíðar:
Herra forseti. — Að vísu hefur orðið nokkuð óvanalegur dráttur á afgreiðslu málsins, því að í febrúar síðastl. var það lagt fyrir þingið, en þakka vil ég sjútvn. og vitamálastjóra þá afgreiðslu, sem það hefur nú fengið, og fullan skilning þeirra á þörf lagabreyt. Vona ég, að málið fái að ganga örugglega gegnum Alþingi.