09.01.1945
Neðri deild: 98. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)

233. mál, róðrartími fiskibáta

Pétur Ottesen:

Ég sé, að frsm. sjútvn. í þessu máli er ekki mættur hér, en vil aðeins taka fram, af því að breyting hefur verið gerð á þessu frv. út af aths., sem ég gerði um málið hér í gær, að með þeim brtt., sem hér eru, er fullnægt þeim aths., sem ég hafði hreyft við þetta frv., því að eins og málið var þá úr garði gert, var ekki hægt að gera neinar ráðstafanir gagnvart þeim mönnum, sem veiðar stunda á Faxaflóa.

Með þessari breytingu er hægt að gera nauðsynlegar ráðstafanir, og þá vænti ég, að ríkisstj. sjái um, að allir þeir, sem sækja á þessi mið, hlíti sömu reglum.