10.01.1945
Efri deild: 98. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (2192)

233. mál, róðrartími fiskibáta

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Ég vil aðeins, um leið og ég þakka n. fyrir fljóta og góða afgreiðslu á málinu, lýsa því yfir, að ég get mjög gjarnan orðið við því, sem hv. frsm. fór fram á, og ég mun ekki, meðan ég hef eitthvað um þetta að segja, nota þessa heimild, nema brýna nauðsyn beri til. Ég vil einnig lýsa yfir hér, eins og ég gerði í Nd., að allar framkvæmdir í þessu máli, bæði setning reglugerðar og allt fyrirkomulag, munu verða gerðar í fullu samkomulagi við viðkomandi aðila.