28.09.1944
Neðri deild: 57. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1165 í B-deild Alþingistíðinda. (2214)

110. mál, sala nokkurra opinbera jarða

Gísli Sveinsson:

Ég hygg, að hv. n. þurfi að breyta frv., hvort sem er, og væri eðlilegast, að brtt. væru teknar aftur til 3. umr., og gæfist hv. n. þá tóm til að athuga till. Gæti hún þá sagt um þær álit sitt, þegar þar að kæmi.