10.01.1945
Neðri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (2456)

53. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar og kappróður

Frsm. (Garðar Þorsteinsson):

Allshn. hefur ekki athugað þessa till. sérstaklega, því að þetta atriði hefur ekki komið til tals í n. fyrr, en ég fyrir mitt leyti sé ekkert á móti því, að þessi almenna heimild verði veitt, enda er tekið fram í brtt., að setja eigi um þetta nánari ákvæði með reglugerð. Það er þess vegna að sjálfsögðu þeirra, sem gefa út reglugerðina, að setja skilyrði, sem annars mundu verða sett, þó að þetta væri bundið við nöfn, eins og núna er í l.

Án þess að ég hafi ráðfært mig við meðnm. mína, þá sé ég ekki, að neitt sé á móti að samþykk ja þetta, og vil fyrir mitt leyti mæla með því.