23.02.1944
Neðri deild: 17. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í B-deild Alþingistíðinda. (247)
27. mál, skipun læknishéraða
Ólafur Thors:
Herra forseti. — Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta fram yfir það, sem ég hef gert. Ég frétti, að hv. frsm. meiri hl. n. hefði verið að sletta úr klaufunum til mín að sínum venjulega hætti, og geri ég ekkert úr því. — En hitt mun satt, sem hann segir, að íbúar Njarðvíkurhéraðs muni fremur vilja vera áfram í því læknishéraði, sem þeir nú eru í, en í hinu nýja héraði, sem ég legg til, að myndað verði, og vil ég leyfa mér að gera hér skrifl. till. í þá átt.