30.01.1945
Efri deild: 114. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í C-deild Alþingistíðinda. (2509)

95. mál, loðdýrarækt

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég þakka hæstv. forseta fyrir þessi ágætu orð, en ég vil láta þess getið, að það er ekki alveg víst, hvernig málið fer, ef rökst. dagskráin verður ekki samþ., og getur þá beðið, að málið fái afgreiðslu. Ég verð að fylgja þessu fast fram og mun enn knýja á náðardyr hjá hæstv. forseta, ef ég fæ ekki málið tekið á dagskrá.