04.12.1944
Efri deild: 81. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (2543)
119. mál, áburðarverksmiðja
Páll Hermannsson:
Ég vil aðeins geta þess, að landbn. mun gera það, sem í hennar valdi stendur þessu máli til framgangs, og henni er ánægja að starfa að því ásamt hæstv. fjmrh., og skal séð um, að hann eigi þess kost að fylgjast með störfum n.